Gilda fyrir þjónustu Stöðvarinnar líkamsrækt, kt. 661125-0390, með vefsíðuna stodingbr.is. Með kaupum á korti eða notkun þjónustu samþykkir viðskiptavinur eftirfarandi skilmála.
1Almennar upplýsingar
Stöðin líkamsrækt er eingöngu hóptímastöð. Aðgangur að æfingum fer fram með virku korti, annaðhvort mánaðarlegri áskrift eða staðgreiddu árskorti, keyptu í gegnum vefsíðu Stöðvarinnar.
2Aldurstakmark
Aldurstakmark er 16 ár án samþykkis forráðamanna. Hægt er að semja um þátttöku yngri einstaklinga með skriflegu samþykki forráðamanns, að mati Stöðvarinnar.
3Heilsufar og ábyrgð
Allir iðkendur æfa á eigin ábyrgð og bera sjálfir ábyrgð á eigin heilsufari og líkamlegu ástandi. Mælt er eindregið með því að ráðfæra sig við lækni eða heilbrigðisstarfsfólk áður en hafin er ný eða krefjandi hreyfing.
Stöðin ber enga ábyrgð á meiðslum, slysum eða heilsutjóni sem kunna að verða við æfingar, nema um stórfellt gáleysi sé að ræða.
Iðkendum ber skylda til að upplýsa þjálfara fyrir æfingar um meiðsli, veikindi, meðgöngu eða aðrar aðstæður sem geta haft áhrif á þátttöku.
4Greiðslur, áskriftir og uppsögn
4.1 Mánaðarleg áskrift
Lágmarksbinding er 2 mánuðir og uppsagnarfrestur er 2 mánuðir. Uppsögn tekur gildi næstu mánaðamót, nema uppsögn berist fyrir 5. dag mánaðarins. Dæmi: sé áskrift sagt upp í miðjum mars þarf að greiða fyrir apríl og maí. Ekki er hægt að frysta kort.
4.2 Árskort
Árskort eru staðgreidd og óendurkræf.
4.3 Vanskil
Takist greiðsla ekki er aðgangur lokaður tímabundið. Gerðar eru nokkrar sjálfvirkar greiðslutilraunir. Við ítrekuð vanskil áskilur Stöðin sér rétt til að fella áskrift niður.
5Tímapantanir, mæting og afbókanir
Skylda er að bóka sig í hóptíma í gegnum bókunarkerfi Stöðvarinnar. Pláss í tímum eru takmörkuð og geta verið mismunandi eftir tegund tíma.
Afbókun þarf að berast að minnsta kosti 1 klukkustund fyrir upphaf tíma. Ítrekuð fjarvera án afbókunar getur leitt til áminningar. Hóptímar eru innifaldir í kortum og kosta ekkert aukalega.
6Reglur um hegðun og brottvísun
Iðkendur skulu sýna kurteisi, virðingu og tillitssemi gagnvart öðrum iðkendum og starfsfólki. Óviðeigandi hegðun, áreitni, ofbeldi eða ógnandi framkoma er ekki liðin. Stöðin áskilur sér rétt til að veita áminningu eða meina aðgang tímabundið eða varanlega. Slík mál eru metin í hverju tilfelli, þar með talið möguleg endurgreiðsla.
7Persónuupplýsingar og persónuvernd
Stöðin safnar aðeins nauðsynlegum persónuupplýsingum, svo sem nafni, netfangi, símanúmeri og upplýsingum tengdum þjónustunni. Upplýsingar eru eingöngu notaðar til reksturs þjónustunnar, bókana, greiðslna og samskipta við viðskiptavini.
Greiðsluupplýsingar eru unnar af Straumi, greiðslugátt, og eru ekki geymdar hjá Stöðinni. Iðkendur eiga rétt á aðgangi að eigin gögnum og geta óskað eftir leiðréttingu eða eyðingu þeirra samkvæmt gildandi lögum. Upplýsingar um bókun á fríum prufutíma (nafn, netfang, sími og valinn tími) eru sendar Stöðinni með tölvupósti í gegnum Resend.
8Myndir og myndbönd
Heimilt er að taka myndir og myndbönd í Stöðinni til markaðs- og kynningarnota. Með þátttöku í æfingum veita iðkendur almennt samþykki fyrir slíku. Iðkendur geta óskað sérstaklega eftir því að vera ekki teknir á mynd, og verður það virt.
9Ábyrgð á eignum
Iðkendur bera sjálfir ábyrgð á persónulegum munum sínum. Stöðin ber enga ábyrgð á tjóni, þjófnaði eða tapi á eigum sem skildar eru eftir í stöðinni eða búningsklefum.
10Breytingar á skilmálum og rekstri
Stöðin áskilur sér rétt til að breyta skilmálum, tímatöflu og þjónustu. Breytingar verða kynntar á vefsíðu eða með tölvupósti. Áframhaldandi notkun þjónustunnar telst samþykki fyrir uppfærðum skilmálum. Stöðin getur aflýst tímum, breytt þjálfurum eða lokað tímabundið vegna óviðráðanlegra aðstæðna, án skaðabótaskyldu.

