Styrkur 60+ Námskeið
Styrkur 60+ er námskeið fyrir alla 60 ára og eldri sem vilja bæta styrk, þrek og hreyfigetu á öruggan og skilvirkan hátt.
Tímarnir eru byggðir upp með blöndu af styrktarþjálfun, þreki og lífsfærni æfingum fyrir jafnvægi, samhæfingu, viðbragð ofl.
Á námskeiðinu vinnum við með þoltæki, lóð og eigin líkamsþyngd undir leiðsögn þjálfara sem tryggir að allar æfingar séu gerðar rétt og undir réttu álagi.
Lögð er áhersla á góða leiðsögn og að allir vinni á sínu getustigi ásamt því að skapa góða stemmningu í hverjum tíma.
Tímarnir eru settir upp svo þeir henti öllum getustigum, hvort sem þú ert vön/vanur hreyfingu eða að taka þín fyrstu skref, hægt er að skala allar æfingar til að mæta þinni þörf — markmiðið er að þú finnir fyrir meiri styrk, orku og lífsþrótti í daglegu lífi.
Þjálfari er Ólafur Örn Ólafsson. Ólafur hefur unnið við einkaþjálfun í yfir 20 ár, þar af síðustu 5 ár með iðkendur á þessum aldri með góðum árangir.
ATH: Tvær tímasetniingar í boði. Morguntímar 3x í viku og seinni parts tímar 2x í viku.


